24.12.2007 | 21:27
Hilsen fra Norge
hei alle sammen,
Gleðileg jól og farsælt komandi ár frá stórfjölskyldunni hér í Noregi.
Jólakveðja,
Þóra og Ástríður.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.12.2007 | 10:35
Litla daman 6 ára.
Loksins er langþráður dagur runninn upp í lífi dóttur minnar. Hún er í dag 6 ára og er að springa úr spenningi yfir afmælisboðinu seinni partinn. Hún er nokkuð lík mömmu sinni að þessu leiti. Þannig að stelpurnar í bekknum munu mæta í afmæli í dag eftir skóla svo það verður örugglega mikið fjör og gaman.
Verð að segja frá laugardeginum 15. desember. Dagurinn byrjaði á afmælisboði dóttir minnar fyrir ættingja og vini, síðan var ég svo heppin að Valli frændi bauð mér og mömmu á tónleika Karlakórs Reykjavíkur í Hallgrímskirkju og vorum við mætt þangað klukkan 16:15, mjög tímanlega til að fá góð sæti. Tónleikarnir voru í alla staði frábærir, einsöngvarar úr röðum kórfélaga voru mjög fínir og þessi stund í alla staði mjög hátíðleg. Eftir tónleikana fór ég svo á jólahlaðborð með vinnufélögum sem haldið var í Iðusölum, Lækjargötu. Kvöldið var í alla staði frábært, maturinn æðislegur og nóg af honum, við í starfmannafélaginu fengum Davíð Ólafsson Bassa og Stefán Helga Stefánsson tenór til að skemmta og er bara eitt orð til um þá, FRÁBÆRIR. Enda líka held ég að allir hafi skemmt sér konunglega og er enn verið að tala um velheppnað jólahlaðborð. Síðar um kvöldið fórum við nokkur að dansa á Thorvaldsen og vorum við það heppinn að eiga dansgólfið í nokkurn tíma, þannig að mikið var dansað. Að lokum fór ég svo heim, ánægð og glöð eftir vel heppnað kvöld.
Að öðru, þá er ég búin að kaupa allar jólagjafirnar nema fyrir mömmu, ég lendi alltaf í vandræðum með hana og veit aldrei hvað ég á að kaupa. Svo er ég með ættingja erlendis sem lenda í því þetta árið að fá gjafirnar milli jóla og nýárs. Ég bara skil ekki hvað varð af desember! Tíminn hvarf og allt í einu eru komin jól og nokkurn veginn allt eftir. Það eru þó bara 3 dagar þangað til við förum til Noregs og ég hlakka svo til að komast að hitta bróður minn og hans fjölskyldu. Það er ekki eins mikið stress þar og hér fyrir jólin. Næstu dagar hér fara þó í það að vinna, pakka inn jólagjöfum, keyra út pakka til þeirra sem verða hér, pakka til ferðalagsins, þrífa íbúðina og reyna svo á fimmtudagskvöldinu að hitta Möggu í súpu á Asíu. Ef ég næ þessu öllu þá er ég ánægð.
Hvernig finnst ykkur veðrið hafa verið uppá síðkastið. Ég er að verða brjáluð sérstaklega þar sem handklæðin mín duga varla til að stöðva vatnsstrauminn sem bullar inn um rúðurnar. Sérstaklega þá á einum stað og síðustu nætur hef ég þurft að skipta um handklæði á sirka 3 tíma fresti og þau eru rennandi blaut. Ég hef bara aldrei lent í öðru eins veseni.
Þar sem ég held að þetta verði síðasta bloggfærsa fyrir jól, þá óska ég ykkur öllum gleðilegra jóla.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.12.2007 | 13:24
Brjálað að gera
Síðustu daga er búið að vera nokkuð brjálað að gera hjá mér, enda finn ég fyrir smá þreytu. Það eru þó skemmtilegir tímar framundan og ég á eftir að gera allt fyrir jólin. Ekki búin að kaupa eina einustu jólagjöf og það verður örugglega ekki gert fyrr en á síðustu stundu.
Tónleikarnir okkar hjá voxinu gengu rosalega vel og allir ánægðir. Nú bíður maður bara eftir upptökunni til að staðfesta það að okkur hafi gengið nokkuð vel. Vona síðan að við byrjum í næstu viku að æfa Verdi Requiem, það er nefnilega rosalega flott músík og ég hlakka mikið til að flytja það verk. Að öðru þá er ég að fara að syngja Mozart Requiem í nótt með óperukórnum og svo síðasta giggið í bili verður á fimmtudagskvöldið hjá KR konum. Þar mun ég syngja einsöng og dúetta með Kristínu auk þess sem hann Kári ætlar að spila með okkur. Ég er nokkuð viss um að það verði góð stund, enda líka erum við að tala um góðan hóp fólks.
Ég er mikið búin að vera að spá í það hvort ég er að keyra mig of mikið þessa dagana og kemst alltaf að sömu niðurstöðu. Svarið er jú, en á móti þá er svo gaman að syngja og koma fram að það bætir svo mikið tilveruna hjá manni og vonandi um leið veitir öðrum gleði og þá hlýtur þetta að vera í lagi. Síðan segir maður alltaf, þetta reddast og þá er maður í raun búin að afgreiða þá hugsun. Það sem veitir manni gleði í lífinu verður maður að veita sér tíma til og reyna að útbreiða þann boðskap örlítið.
Næstu daga verður nóg að gera og svo um helgina þá verður hún Ástríður dóttir mín með sinn fyrsta blokkflautu konsert í Neskirkju og um kvöldið þá koma frændur mínir með börn og konur í mat og ætlum við að eyða skemmtilegri kvöldstund saman. Við mæðgur ætlum síðan að toppa helgina með því að fara á skilaboðaskjóðuna. Eins og ég segi, aldrei dauð stund og mjög gaman.
Þangað til næst, þá kveð ég og óska ykkur alls hins besta.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Þóra H. Passauer
Bloggvinir
Alls konar upplýsingar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar