28.8.2007 | 12:02
Fyrsta kóræfingin í kvöld og ég hlakka til...
Fyrsta kóræfing vetrarins í kvöld og ég er farin að hlakka mikið til. Kórinn sem ég er í heitir Vox academica og stjórnandi er Hákon Leifsson. Síðustu vetur höfum við verið að færa okkur upp á skaftið og tekið nokkur af flottustu verkum tónbókmentanna, eins og Messias eftir Handel, Mozart Requiem, Ein Deutsches Requiem eftir Brahms, Magnificat eftir Bach og þetta ár verður engin eftirbátur í þeim efnum. Ákveðið hefur verið að taka á tónleikum okkar þann 1. desember Gloriu eftir Poulenc, Cantate de Nöelle eftir Arthur Honegger auk kafla úr öðrum stórverkum. En það sem ég hlakka mest til er að flytja Verdi Requiem þann 5. apríl með Kristni Sigmundssyni, stórhljómsveit auk annarra söngvara sem ekki er vitað um í dag hverjir verða en ég skal leyfa ykkur að fylgjast með.
Í raun hlakka ég alltaf mest til er að takast á við verkefni sem ég hef ekki sungið áður og hefur Voxið eins við köllum kórinn gefið mér þetta tækifæri. Síðustu ár hef ég sungið ótrúlega mikið af verkum sem ég kannski þekkti lítið áður, einu sinni heyrt en núna farin að þykja vænt um. Svo höfum við líka verið með hljómsveit Jón Leifs Camerata sem er eingöngu skipuð tónlistarmönnum úr Sinfóníuhljómsveit Íslands og hefur það samstarf verið alveg frábært. Stjórnandi kórsins hefur líka unnið ofboðslega vel með okkur og hljómur kórsins vaxið mikið ár frá ári og að okkar mati að verða nokkuð góður konsertkór. Við megum líka þakka Jóni Þorsteinssyni tenór, hann hefur séð um raddþjálfun okkar síðustu ár og höfum við kórfélagar fundið mikla breytingu á okkur sem söngvurum.
Þá er ég búin að hæla kórnum nokkuð og veit ég vel að ég er hlutdræg. En ef þið trúið mér ekki þá er bara að fylgjast með auglýsingum og mæta á tónleika og dæma sjálfur.
p.s. það vantar alltaf tenór og bassa í kórinn. Svo ef þið hafið áhuga endilega kíkið á heimasíðu kórsins og þar eru meiri upplýsingar um við hvern er best að hafa samband við.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.8.2007 | 10:39
Afmælisdagur
Jæja, þá er ég orðin 38 ára gömul og lífið yndislegt.
Fyrsti skóladagur dóttur minnar og þegar ég fylgdi henni í skólann í morgunn þá varð ég svolítið meyr. Litla stelpan mín orðin stór og svo tilbúinn að takast á við næstu verkefni. Ekki datt mér í hug að maður upplifði þessa tilfinningu svo sterka.
Var í söngtíma í gær og þetta var frábær tími. Það er svo margt að gerast hjá mér raddlega og röddin að stækka og farin að hljóma svo miklu meira að ég á erfitt með að lýsa þeirri tilfinningu sem ég fæ þegar ég upplifi hljóminn. Þannig að á næstunni mun ég vinna vel í því að festa þessa tilfinningu í líkamann. Segja tölvunni í hausnum á mér að ég vilji framkvæma alltaf þetta þegar ég syng og á endanum munu allir tónar hljóma á sama stað.
Hvað meira get ég sagt ykkur. Jú, ég fann síman minn sem ég tilkynnti týndan um daginn. Leigubílstjórinn fann hann og var hann alveg á milli sætanna í bílnum, þannig að öll þau skipti sem ég hringdi í hann þá heyrðist ekki neitt og það er alveg ótrúlegt, því það heyrist frekar hátt í símanum.
Ég var að baka í gær, sem er nú ekki neitt merkilegt. Nema það að ég er búin að vera frekar óheppin með öryggiskerfið sem ég er með. Það kom óvart einhver reykur úr ofninum og kerfið byrjaði að væla eins og ég veit ekki hvað. Einn nágranninn reyndi að koma mér til bjargar og komst að því að reykskynjarinn var bara laus ekki fastur á sínum stað. Síðan virkaði kóðinn ekki og ég hringdi í Securitas sem gat ekki slökkt á þessu væli fyrir mig. Á endanum fattaði ég að nota fjarstýringuna og þá loksins hætti þetta að væla. Gallinn við þetta er að ég er nýbúin að kaupa þessa íbúð og það er búið að væla í kerfinu sirka 4 sinnum síðan ég flutti inn. Ég er farin að vorkenna nágrönnunum að hafa mig í stigaganginum. Sérstaklega þar sem þeir fengu vælið í gærkvöldi og svo fá þeir partý yfir sig í kvöld. Ætli ég verði ekki að vera frekar róleg fram að jólum ef ég ætla að reyna að hafa góða nágranna.
Eitt fyndið get ég líka sagt ykkur. Við erum 2 í vinnunni á 13 manna vinnustað sem eigum afmæli í dag. Hún heitir Þórarna og ég Þóra. Við eigum báðar bræður sem heita Guðmundur og við byrjuðum með viku millibili í þeirri vinnu sem við erum núna. Svolítið öflugt á samt svona litlum vinnustað.
Að lokum þá óska ég öllum þeim sem eiga afmæli í dag, til hamingju með daginn og ég óska þess að þið munið njóta hans eins vel og ég mun gera í dag.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.8.2007 | 10:29
Masterklassi á Mön hjá Sólrúnu Bragadóttur framhald
Vikan hjá Sólrúnu var vel skipulögð og var mikið unnið bæði raddlega, andlega og svo að tónlistinni. Eftir morgunnverð þá var Birna tilbúin með andlega þáttinn og fórum við í allskonar verkefni út frá íhugun, leikjum og fleiru. Við vorum látin lýsa því með því að lita á blað þá tilfinningu sem fundum út frá orði sem við drógum. Þessa viku var mikið litað og komu listrænir hæfileikar okkar við teikninguna misjafnlega fram. Ég komst t.d. að því að ég hef mjög litla hæfileika á þessu sviði. En hvað um það ég lærði að tjá tilfinningu með litum og fannst þetta nokkuð skemmtilegt. Við fórum líka í alls konar leiki, við tókum tónlistina sem við vorum að vinna með og útskýrðum hvernig við upplifðum hana, hvers konar liti við sæjum í tónlistinni, hvað hún gæfi okkur og hvernig við vildum koma henni á framfæri. Við lærðum ansi mikið að vinna með tilfinningar okkar, hvernig við getum notað þær tilfinningar frá eigin upplifun við að vinna verkefni, hvernig við getum losað okkur við tilfinningar sem eru fastar hjá okkur og gefa okkur hnút í magann. Hvernig við getum lært að einbeita okkur að okkur sjálfum fyrir tónleika og á þessum stutta tíma gerði ég mér grein fyrir vinnunni sem þarf að vinna til að verða góður söngvari.
Eftir þennan tíma þá var yfirleitt farið í að vinna með röddina okkar. Við vorum öll á misjöfnu stigi hvað var sönginn og þ.a.l. var ekki unnið með okkur á sama hátt. Hvað mig varðar þá er ég búin að vera í mörg ár að læra, klárað burtfararpróf, hætt að læra og verið í frábærum kór sem heitir Vox academica. Fyrir ári síðan byrjaði ég aftur í söngtímum hjá Jóni Þorsteinssyni og gerði mér grein fyrir í fyrsta skipta að ég er með góða rödd, að öllum líkindum er hún alt og að hún er stór. Þetta ár er ég búin að vera að vinna að því að laga það hvernig ég syng og lagfæra þá vitleysur sem ég hef lært. Þetta er verkefni til einhvers tíma og ég verð að vera þolinmóð hvað það varðar og ætla ég að gera þessa vinnu og þetta ferli eins skemmtilegt og möguleiki er á. Svo ég fari aftur að námskeiðinu hjá Sólrúnu, þá hafði vinnan með Jóni hjálpað mér rosalega til að skynja hvað ég þurfi að gera til að stækka röddina og fá meiri hljóm í hana. Sólrún og Jón eru með svipaðar kröfur hvað varðar tækni og leiðbeina á mjög svipaðan hátt. Það small margt hjá mér þessa vikuna, og tilfinningin sem ég fann þegar ég var að syngja rétt var eins og ég svifi á einhverju skýi . Þessi tilfinning er alveg æðisleg og erfitt að útskýra, eins konar "rush" og vil ég gjarnan vinna að því að finna hana oftar. Þannig að þessi vika var mjög þétt í vinnu með röddina, svo unnum við líka með Semion sem var meðleikari okkar. Hann er sérstakur og yndislegur maður, sem gerði miklar kröfur á okkur hvað varðar að flytja músíkina á réttan hátt. Ég vann 5 verk, Tonerna lag eftir Sjöberg, Den första kyssen lag eftir Sibelius, Verborgenheit eftir Hugo Wolf, Sequidille úr Carmen eftir Bizet og að lokum Che faro senza Euridice úr Orfeu eftir Cluck. Öll þessi verk gera kröfur og lýsa mér nokkuð vel. Ég tók nefnilega eftir því að við veljum okkur oft verk eftir því hvernig okkur líður.
Að lokum get ég sagt að tónleikarnir sem við héldum í lok námskeiðsins tókust mjög vel og er ég nokkuð ánægð með mína frammistöðu, náði að læra allt utan að, vinna eins vel og ég gat að tónlistinni, flutningurinn á verkunum var ágætur, röddin ekki alltaf á sínum stað, en ég sá og fann að ég er enn að læra þannig að kröfurnar verða að vera á svipuðum slóðum. Ég er staðráðin í því að halda þessari vinnu áfram og ég er nokkuð viss um að ég reyni að fara að ári liðnu til Sólrúnar aftur á Mön ef hún heldur þetta námskeið því það var yndislegt að vera þarna og eiga þau Sólrún og Thomas maður hennar hrós skilið fyrir gestrisni og þökk fyrir yndislega viku.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 10:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.8.2007 | 23:22
Masterklassi á Mön hjá Sólrúnu Bragadóttur - Maturinn....
Þá er komið að því að segja ykkur örlítið frá þessari reynslu minni...
Ég kom til Sólrúnar að Hjelmvej á Mön þann 21. júlí 2007, allir þátttakendur mættir og kynning hafinn á vikudagskránni. Það sem mér þótti svo frábært við þennan mastersklassa í söng var að það var unnið í öllu, s.s. mataræði, sálartetrinu, söngnum, tónlistinni og öllu því sem viðkemur því að viðhalda góðri rödd.
Við vorum 4 á námskeiðinu, Auður frá Selfossi, Bragi frá Reykjavík, Peter frá Kaupmannahöfn og ég frá vesturbænum(Reykjavík). Auður og ég deildum saman herbergi á næsta bæ og hjóluðum eða gengum á milli (3km).
Við vöknuðum frekar snemma þessa daga og fengum þá beiðni um að tala ekki við neinn, heilsa ekki neinum og allgjörlega einbeita okkur að okkur sjálfum. Þetta var smá erfitt þar sem ég og Auður deildum saman herbergi þó sérstaklega þar sem gemsarnir okkar voru notaðir sem vekjaraklukkur, en auðvitað gekk þetta upp. Okkur fannst þetta nú smá skrítið en þegar á reyndi þá leist okkur bara vel á þetta. Við hittumst síðan öll klukkan 8:30 í Soloperasalen hvern morgunn og var farið í öndun og svo íhugun í sirka 30 mínútur. Ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei prófað svona áður og mér leist bara þræl vel á þetta. Þegar þessu síðan lauk þá fengum við morgunnmat, eingöngu ávexti.....
Morgunmaturinn var s.s. ávextir, ofboðslega girnilegir og eins mikið og við gátum í okkur látið..
Ég ætla ekki að skrifa um allt núna, framhald kemur síðar. En mig langar að til að skrifa um mataræðið þessa vikuna. Það var t.d. heimabakað speltbrauð með allskonar gúmmelaði og bakað með lyftidufti í stað gers og brauðið var yndislega, æðislega gott.
Hádegismaturinn var aðalmáltíðin og fengum við mikið af sallati, súpum og snilldarréttum með sojakjöti (segir maður sojakjöt?) dýrindis fiskrétti og hvað get ég nefnt. Það var alltaf eitthvað með kaffinu, mest þó ávextir, stundum heilsukökur. Ég drakk eiginlega ekkert kaffi og ekki dropa af hvítvíni, rauðvíni né bjór... Kvöldmaturinn var léttur, mikið salat auk þess sem við fengum þetta dýrindis brauð með alls konar smuráleggi, rjómaostum og pestó.
Í dag er ég búin að skrifa um matinn, íhugun og smá öndun. Margt af þessu mun ég viðhalda, eins og ávöxtum í morgunnmat, hætta að kaupa brauð, bara einfaldlega baka það. Prufaði það um daginn, það tók stuttan tíma og var ekkert mál. Ég var líka mjög hrifin af súpunum, sem voru eingöngu úr fersku grænmeti, jurtum og smá rjóma. T.d. síðasta laugardagskvöld borðum við nokkrar vinkonur saman heima hjá mér og var ég með Spínat-fajhitas, sem gerði rosa lukku. Ég er þó ekki alveg búin að segja bless við kjötið enda þykir mér það mjög gott. Það er bara skoða hvað fer saman með því og bjóða fram meira af sallati en þetta hefðbundna.
Þannig að þessi vika hjá Sólrúnu breytti ansi miklu um það hvernig ég bý til mat, hvað mig langar að borða til að hafa hollt og gott mataræði. Hef líka komist að því að mér líður betur raddlega við að hafa gert smá breytingu á matnum. Svo til að enda þennan pistil á góðan hátt þá skiptir mataræðið örugglega um 70% af því að halda líkamanum með besta móti.
Næsti kafli af Mastersklassanum verður um raddæfingarnar og vinnuna í kringum sálartetrið..
6.8.2007 | 10:56
Myndum bætt inn....
jæja, þá er ég byrjuð að hlaða inn myndum af fjölskyldunni. Það mun taka mig smá tíma að byrja á almennum skrifum um það sem mig langar að deila með ykkur.
Helgin var nokkuð skemmtileg, við vinkonurnar borðuðum saman hjá mér. Fórum síðan út á lífið og kvöldið var yndislegt. Það versta við það þó var að ég tapaði símanum mínum. Glænýr Sony Ericsson W610i, þannig að ef þið sjáið svona síma eigandalausan þá megið þið endilega láta mig vita.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.8.2007 | 16:18
Fyrsta bloggið!!
Þá er ég byrjuð að blogga.... Mun svona fikra mig áfram í þeim efnum.
Þar sem þetta er mitt fyrsta blogg þá ætla ég að hafa það stutt. Ég vona að þið fyrirgefið mér það......
Ég er nýkomin úr fríi og langar að deila þeirri reynslu með ykkur. Ég var nefnilega í Danmörku á Masterklassa-námskeiði í söng hjá Sólrúnu Bragadóttur og upplifði frábæra hluti þar og á næstu dögum ætla ég að skrifa örlítið um þetta námskeið, bæta við upplýsingum, kannski myndum og öðru efni.
Síðar mun ég örugglega bara ræða um daginn og veginn, mína fjölskyldu og annað sem dettur inn á borð til mín. Eitthvað persónulegt mun örugglega detta hér inn, þannig að allt er opið.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 16:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Þóra H. Passauer
Bloggvinir
Alls konar upplýsingar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar