Bloggvinir!

Ég er búin að vera að kynna mér hinar ýmsu síður og er svona að spá í hvernig þetta virkar með bloggvinina. Eru þetta kunningjar ykkar eða eru þetta bara hinir ýmsu sem koma að þessum rafræna heimi skrifaðra hugsanna?

Ég er nefnilega bara búin að finna einn bloggvin og myndi gjarnan óska þess að fleiri myndu bjóða sig fram svo ég þurfi ekki að eyða ótrúlega löngum tíma í að lesa, bjóða o.s.frv. ...

 


Tímaleysi og metnaður ...

Maður er alltaf að kvarta yfir því að hafa ekki nægan tíma fyrir sig til að slappa af, hafa það notalegt og njóta lífsins. Ég held að maður getur kennt sjálfum sér um, minnsta kosti get ég það. Ég var nefnilega að bæta við mig fjarnámi í forritun eins og ég hef verið að gera síðustu ár, nema að þessa önn ætlaði ég að taka mér pásu. En viti menn, ég er búin að skrá mig og meira að segja búin að skila mínu fyrsta verkefni.

Svo ég fari yfir það sem ég er búin að koma mér í fyrir þennan vetur:

  • Í kórnum Vox academica, æfingar á þriðjudagskvöldum, auk einnar mánudagsæfingar í hverjum mánuði, svo er ég í stjórn kórsins og það er nóg að gera þar.
  • Í stjórn húsfélagsins, næg verkefni.
  • Getraunastarf KR - Laugardagsmorgnar af og til.
  • Badminton á fimmtudagskvöldum
  • Fjarnám í forritun, heimalærdómur og verkefnavinna
  • Einsöngstímar og undirleikstímar með meðleikara. Nokkuð mikið um heimalærdóm og svo verð ég að hafa tíma til að æfa mig.

Þetta er náttúrulega bara listi yfir það sem ég geri aukalega því auðvitað þarf ég að halda heimili, vinna, læra með dóttur minni og eiga frábærar stundir með henni. Þannig að af mörgu er að taka þetta árið. Það sem gerir þetta þó skemmtilegt og gott er að ég hef gaman því sem ég er að gera.

Það er líka eitt sem ekki má gleyma og það er að hafa tíma til að hitta vini sína, eyða með þeim stundum og njóta félagsskapar þeirra. Síðan kannski út frá því fara í það að finna manninn sem manni langar að deila lífinu með.Wink

Hvernig er þetta með ykkur hin??

 


Golfmót - Hnit Open

Jæja, það fór nú ekki alveg eins vel og ég vonaði. Þvílík meðalmennska, við Andri lentum í 5 sæti og þar með misstum við meira segja af verðlaunum þeirra sem notuðu mest völlinn. Það voru Halldór og Viðar, sem unnu gólfmótið í ár, báðir með 50 í forgjöf, en það í raun skipti ekki máli því þeir fóru völlinn á 43 höggum. Við Andri ákváðum að fyrir næsta ár þá myndum við annaðhvort hækka hans forgjöf, eingöngu hægt ef hann skilar alltaf inn hærra skori eða þá að ég þurfi að fara að taka upp golf og æfa stíft. Það verður að koma í ljós hvor aðferðin verður valinn. Við komust þó að nokkrum atriðum og fyrsta er að það borgar sig ekki að fá sér bjór áður en maður byrjar. Þannig að við hættum að fá okkur drykk á 2 holu, því upp kom einbeitingarskortur og klúður. Af minni hálfu mátti alveg búast við frekar lélegum höggum því þetta voru mín fyrstu skref í golfi,  en Andri var búinn að æfa nokkuð og hann var ekki par hrifinn af sínum höggum. Ég get þó státað mig af líklegast flottustu vindhöggum því þegar þau komu þá fór ég yfirleitt í heilhring. Þannig að ég bauð mínum hópfélögum upp á ódýr skemmtiatriði. Ég náði líka tveimur flottum púttum, sem gaf okkur holu á pari. Golfmótið tók þó svolítinn tíma því við fórum 9 holur á tæpum 4 tímum og hleyptum 2 hópum á undan okkur. Að lokum settumst við í golfskálin fengum hamborgar og rauðvín, fórum inn í rútu og lögðum af stað heim. Ég var komin sirka um 11 leitið heim. Það var þó ekki æðisleg heimkoma, því ekki var hægt að keyra heim Hringbrautina út af mjög alvarlegu slysi. Ekki veit ég hvað kom fyrir en að öllum líkindum hefur annar hvor aðilinn keyrt of hratt því bílarnir voru í maski og enn var verið að reyna að ná manneskju út úr öðrum bílnum. 

Í kvöld er síðan landsleikur í fótbolta. Ég ætla að mæta, þ.e.a.s. verð í miðasölunni að selja síðustu 1000 miðanna. Þá er spurning, hver ætli vinni leikinn??? Lýtur ekki alveg nógu vel út fyrir okkur, en hver veit.  Á árum áður var hægt að gera ýmislegt til að gera andstæðinginn frekar óvirkan fyrir leik með t.d. að bjóða á hestbak daginn fyrir eða svo segir ein sagan. En í dag þá verðum við víst að kunna að spila smá. 


Góð veisla

Þá er loksins komið að því að gera smá skil á veislunni sem ég hélt um daginn. Það var nokkuð um manninn og komst ég að því að nýja íbúðin mín rúmar nokkuð marga. Sérstaklega ef hægt er að skipta niður í hópa og rótera þannig að allir nái að tala saman. Eldhúsið er alltaf vinsæll staður og þangað þurfti fólkið að fara til að ná sér í drykki, svalirnar voru síðan eitthvað uppteknar fyrir þá sem reyktu, en í stofunni var hægt að fá sér eitthvað að snæða og þar var setið við og mikið talað. Ég tók nefnilega eftir því að stórkostlegu græjurnar sem ég á voru ekki notaðar. Ég held að diskur með jasslögum Kiri Te Kanawa rúllaði tvisvar í gegn og síðan enginn önnur tónlist. Það er svona þegar fjöldi kvenna kemur saman, þá þarf að tala aðeins.Wink Ef minnið fer rétt með, þá sátum við frekar lengi að og síðan var farið niður í bæ. Ég er svona hægt og rólega að fara að komast að því að ég er að verða of gömul í þetta næturbrölt þó það sé skemmtilegt. Laugardagurinn var nokkuð erfiður og þá átti eftir að taka til og gera huggulegt til að hægt væri að fleygja sér í sófann og horfa á sjónvarpið.

Annað sem hefur á daga mína drifið er ekki mikið til frásagnar. Nema kannski það að kórinn minn var að fá nýtt æfingahúsnæði í Söngskóla Sigurðar Dements og gekk síðasta æfing rosalega vel. Við erum búin að lesa yfir Gloríuna eftir Poulenc og er hún ofboðslega falleg. Ef þið trúið mér ekki þá getið þið farið á YouTube og skráð í leit Poulenc+Gloria og hlustað á nokkra kafla. Á næstu æfingu þá munum við byrja á hinu verkinu sem er eftir Arhur Honegger. Það verður hins vegar nokkuð spennandi því ég hef aldrei heyrt það verk og ég býst við því að það sé krefjandi raddlega.

Nú er ég búin að vera hjá Jóni söngkennara 2svar og fékk það verkefni að læra sem flestar aríur eftir Handel sem ég á. Þannig að nú er ég að læra Aríur úr Messías og Rinaldo.  Áður valdi ég mér frekar að syngja ljóð, en er að komast að því að það væri nú ekki verra að geta tekið nokkrar aríur. Sérstaklega þegar maður skoðar það "repertuar" sem er fyrir mína raddlegu.  Svo nú er ekki annað en að læra þær vel, drífa sig svo með þær til Gerrit til frekari vinnslu og finna svo ný verk. Dugar ekkert annað en að halda bara áfram..

Svona eitt að lokum því í dag er ég að fara með vinnunni í Golfmót og þar sem ég hef ekki snert golfkylfu þá er ég pöruð með vanari spilara og fæ í 55 í forgjöf. Mér líst rosalega vel á það því þá get ég með góðu móti slegið út í skurð og reynt að komast á völlinn aftur án þess að mikið verði kvartað yfir mér. Þannig að ég kveð ykkur í bili hér og vona að þið sem kíkið hingað inn til að fylgjast með mér, fyrirgefið letina.Smile


Um bloggið

Þóra H. Passauer

 

Þóra Hermannsdóttir Passauer
Þóra Hermannsdóttir Passauer

39 átta ára gömul á dóttur sem heitir Ástríður. Einnig á ég frábæra vini, er í skemmtilegum og góðum konsert kór og þegar ég er ekki í vinnunni þá er ég að læra að syngja, halda heimili, út á KR, í Ketilbjöllum og að njóta lífsins.

Ps. Elska að bjóða skemmtilegu fólki í mat og spjall.

Sept. 2007
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30            

Nýjustu myndir

  • Helena og Ástríður sumarið 2008
  • Ástríður og Helena sumarið 200
  • Vox academica

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband