8.4.2008 | 15:27
Hvað er að frétta.......
Það er búið að vera brjálað að gera hjá mér. Var að syngja Verdi Requiem um helgina fyrir troðfullri Hallgrímskirkju. Þetta var geggjuð og magnþrungin upplifun. Rúv tók upp tónleikana og ég skal láta vita þegar á að flytja þá í útvarpinu. Einsöngvararnir voru æðislegir, hljómsveit frábær og við Voxið geggjuð. Þetta er náttúrulega bara mitt mat, en þeir sem hafa talað við mig eftir tónleika eru á sama máli.
Að öðru söngtengdu þá er ég að fara að taka mér nokkuð góðan tíma í að þjálfa mína rödd, mikið af söngtímum, mastersklössum og sjálfsnámi framundan. Stefni á að vinna að Bach kantötu með Kára organista. Stefni líka að því að bjóða fram söng minn í Neskirkju. Vera dugleg að æfa mig og fá þjálfun. Verð eitthvað á vappinu erlendis, fer til Danmerkur og svo á ráðstefnu í San Diego CA. Þannig að það er í nægu að snúast.
Af fjölskyldulífinu er það að frétta að dóttirin dafnar rosalega vel, hún blómstrar í því sem hún gerir. Alltaf á útopnu í að hreyfa sig, syngur eins og engill í kórnum sínum og spilar eins og herforingi á blokkflautuna sína auk þess sem hún stefnir hátt sem tónskáld. Hún hefur verið dugleg að setjast við píanóið og búa til lög og texta, auk þess að grípa í blokkflautuna til að fá fjölbreytnina. Ég vona bara að þetta þróist áfram og að hún njóti þess rosalega að halda áfram tónlistarnáminu.
Ég læt þetta duga í bili..
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggfærslur 8. apríl 2008
Um bloggið
Þóra H. Passauer
Bloggvinir
Alls konar upplýsingar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar