Færsluflokkur: Menning og listir

Masterklassi á Mön hjá Sólrúnu Bragadóttur framhald

Vikan hjá Sólrúnu var vel skipulögð og var mikið unnið bæði raddlega, andlega og svo að tónlistinni. Eftir morgunnverð þá var Birna tilbúin með andlega þáttinn og fórum við í allskonar verkefni út frá íhugun, leikjum og fleiru. Við vorum látin lýsa því með því að lita á blað þá tilfinningu sem fundum út frá orði sem við drógum. Þessa viku var mikið litað og komu listrænir hæfileikar okkar við teikninguna misjafnlega fram. Ég komst t.d. að því að ég hef mjög litla hæfileika á þessu sviði. En hvað um það ég lærði að tjá tilfinningu með litum og fannst þetta nokkuð skemmtilegt. Við fórum líka í alls konar leiki, við tókum tónlistina sem við vorum að vinna með og útskýrðum hvernig við upplifðum hana, hvers konar liti við sæjum í tónlistinni, hvað hún gæfi okkur og hvernig við vildum koma henni á framfæri. Við lærðum ansi mikið að vinna með tilfinningar okkar, hvernig við getum notað þær tilfinningar frá eigin upplifun við að vinna verkefni, hvernig við getum losað okkur við tilfinningar sem eru fastar hjá okkur og gefa okkur hnút í magann. Hvernig við getum lært að einbeita okkur að okkur sjálfum fyrir tónleika og á þessum stutta tíma gerði ég mér grein fyrir vinnunni sem þarf að vinna til að verða góður söngvari.

Eftir þennan tíma þá var yfirleitt farið í að vinna með röddina okkar. Við vorum öll á misjöfnu stigi hvað var sönginn og þ.a.l. var ekki unnið með okkur á sama hátt. Hvað mig varðar þá er ég búin að vera í mörg ár að læra, klárað burtfararpróf, hætt að læra og verið í frábærum kór sem heitir Vox academica. Fyrir ári síðan byrjaði ég aftur í söngtímum hjá Jóni Þorsteinssyni og gerði mér grein fyrir í fyrsta skipta að ég er með góða rödd, að öllum líkindum er hún alt og að hún er stór. Þetta ár er ég búin að vera að vinna að því að laga það hvernig ég syng og lagfæra þá vitleysur sem ég hef lært. Þetta er verkefni til einhvers tíma og ég verð að vera þolinmóð hvað það varðar og ætla ég að gera þessa vinnu og þetta ferli eins skemmtilegt og möguleiki er á. Svo ég fari aftur að námskeiðinu hjá Sólrúnu, þá hafði vinnan með Jóni hjálpað mér rosalega til að skynja hvað ég þurfi að gera til að stækka röddina og fá meiri hljóm í hana. Sólrún og Jón eru með svipaðar kröfur hvað varðar tækni og leiðbeina á mjög svipaðan hátt. Það small margt hjá mér þessa vikuna, og tilfinningin sem ég fann þegar ég var að syngja rétt var eins og ég svifi á einhverju skýi . Þessi tilfinning er alveg æðisleg og erfitt að útskýra, eins konar "rush" og vil ég gjarnan vinna að því að finna hana oftar. Þannig að þessi vika var mjög þétt í vinnu með röddina, svo unnum við líka með Semion sem var meðleikari okkar. Hann er sérstakur og yndislegur maður, sem gerði miklar kröfur á okkur hvað varðar að flytja músíkina á réttan hátt. Ég vann 5 verk, Tonerna lag eftir Sjöberg, Den första kyssen lag eftir Sibelius, Verborgenheit eftir Hugo Wolf, Sequidille úr Carmen eftir Bizet og að lokum Che faro senza Euridice úr Orfeu eftir Cluck. Öll þessi verk gera kröfur og lýsa mér nokkuð vel. Ég tók nefnilega eftir því að við veljum okkur oft verk eftir því hvernig okkur líður.

Að lokum get ég sagt að tónleikarnir sem við héldum í lok námskeiðsins tókust mjög vel og er ég nokkuð ánægð með mína frammistöðu, náði að læra allt utan að, vinna eins vel og ég gat að tónlistinni, flutningurinn á verkunum var ágætur, röddin ekki alltaf á sínum stað, en ég sá og fann að ég er enn að læra þannig að kröfurnar verða að vera á svipuðum slóðum. Ég er staðráðin í því að halda þessari vinnu áfram og ég er nokkuð viss um að ég reyni að fara að ári liðnu til Sólrúnar aftur á Mön ef hún heldur þetta námskeið því það var yndislegt að vera þarna og eiga þau Sólrún og Thomas maður hennar hrós skilið fyrir gestrisni og þökk fyrir yndislega viku.


Masterklassi á Mön hjá Sólrúnu Bragadóttur - Maturinn....

Þá er komið að því að segja ykkur örlítið frá þessari reynslu minni...

Ég kom til Sólrúnar að Hjelmvej á Mön þann 21. júlí 2007, allir þátttakendur mættir og kynning hafinn á vikudagskránni. Það sem mér þótti svo frábært við þennan mastersklassa í söng var að það var unnið í öllu, s.s. mataræði, sálartetrinu, söngnum, tónlistinni og öllu því sem viðkemur því að viðhalda góðri rödd.

Við vorum 4 á námskeiðinu, Auður frá Selfossi, Bragi frá Reykjavík, Peter frá Kaupmannahöfn og ég frá vesturbænum(Reykjavík). Auður og ég deildum saman herbergi á næsta bæ og hjóluðum eða gengum á milli (3km).

Við vöknuðum frekar snemma þessa daga og fengum þá beiðni um að tala ekki við neinn, heilsa ekki neinum og allgjörlega einbeita okkur að okkur sjálfum. Þetta var smá erfitt þar sem ég og Auður deildum saman herbergi þó sérstaklega þar sem gemsarnir okkar voru notaðir sem vekjaraklukkur, en auðvitað gekk þetta upp. Okkur fannst þetta nú smá skrítið en þegar á reyndi þá leist okkur bara vel á þetta. Við hittumst síðan öll klukkan 8:30 í Soloperasalen hvern morgunn og var farið í öndun og svo íhugun í sirka 30 mínútur. Ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei prófað svona áður og mér leist bara þræl vel á þetta.  Þegar þessu síðan lauk þá fengum við morgunnmat, eingöngu ávexti.....

Morgunmaturinn var s.s. ávextir, ofboðslega girnilegir og eins mikið og við gátum í okkur látið..

Ég ætla ekki að skrifa um allt núna, framhald kemur síðar. En mig langar að til að skrifa um mataræðið þessa vikuna.  Það var t.d. heimabakað speltbrauð með allskonar gúmmelaði og bakað með lyftidufti í stað gers og brauðið var yndislega, æðislega gott.Smile

Hádegismaturinn var aðalmáltíðin og fengum við mikið af sallati, súpum og snilldarréttum með sojakjöti (segir maður sojakjöt?) dýrindis fiskrétti og hvað get ég nefnt.  Það var alltaf eitthvað með kaffinu, mest þó ávextir, stundum heilsukökur. Ég drakk eiginlega ekkert kaffi og ekki dropa af hvítvíni, rauðvíni né bjór...  Kvöldmaturinn var léttur, mikið salat auk þess sem við fengum þetta dýrindis brauð með alls konar smuráleggi, rjómaostum og pestó.

Í dag er ég búin að skrifa um matinn, íhugun og smá öndun. Margt af þessu mun ég viðhalda, eins og ávöxtum í morgunnmat, hætta að kaupa brauð, bara einfaldlega baka það. Prufaði það um daginn, það tók stuttan tíma og var ekkert mál. Ég var líka mjög hrifin af súpunum, sem voru eingöngu úr fersku grænmeti, jurtum og smá rjóma. T.d. síðasta laugardagskvöld borðum við nokkrar vinkonur saman heima hjá mér og var ég með Spínat-fajhitas, sem gerði rosa lukku. Ég er þó ekki alveg búin að segja bless við kjötið enda þykir mér það mjög gott. Það er bara skoða hvað fer saman með því og bjóða fram meira af sallati en þetta hefðbundna.

Þannig að þessi vika hjá Sólrúnu breytti ansi miklu um það hvernig ég bý til mat, hvað mig langar að borða til að hafa hollt og gott mataræði. Hef líka komist að því að mér líður betur raddlega við að hafa gert smá breytingu á matnum. Svo til að enda þennan pistil á góðan hátt þá skiptir mataræðið örugglega um 70% af því að halda líkamanum með besta móti.

Næsti kafli af Mastersklassanum verður um raddæfingarnar og vinnuna í kringum sálartetrið..


Fyrsta bloggið!!

Þá er ég byrjuð að blogga.... Mun svona fikra mig áfram í þeim efnum.

Þar sem þetta er mitt fyrsta blogg þá ætla ég að hafa það stutt. Ég vona að þið fyrirgefið mér það......

Ég er nýkomin úr fríi og langar að deila þeirri reynslu með ykkur. Ég var nefnilega í Danmörku á Masterklassa-námskeiði í söng hjá Sólrúnu Bragadóttur og upplifði frábæra hluti þar og á næstu dögum ætla ég að skrifa örlítið um þetta námskeið, bæta við upplýsingum, kannski myndum og öðru efni. 

 Síðar mun ég örugglega bara ræða um daginn og veginn, mína fjölskyldu og annað sem dettur inn á borð til mín. Eitthvað persónulegt mun örugglega detta hér inn, þannig að allt er opið.

 

 

 

 

 


Um bloggið

Þóra H. Passauer

 

Þóra Hermannsdóttir Passauer
Þóra Hermannsdóttir Passauer

39 átta ára gömul á dóttur sem heitir Ástríður. Einnig á ég frábæra vini, er í skemmtilegum og góðum konsert kór og þegar ég er ekki í vinnunni þá er ég að læra að syngja, halda heimili, út á KR, í Ketilbjöllum og að njóta lífsins.

Ps. Elska að bjóða skemmtilegu fólki í mat og spjall.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Helena og Ástríður sumarið 2008
  • Ástríður og Helena sumarið 200
  • Vox academica

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 687

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband